Upcoming MatchKormákur Hvöt – Dalvík Reynir/4. June 2025/Blönduósvöllur

Appelsínugul viðvörun

Nú þegar keppni flestra deilda er tveggja umferða gömul er vert að skoða hvernig rúllað er af stað. Pefsídeildin fór af stað fyrir löngu og okkur er næsta sama um hana, en B, C, D og sennilega neðar eru rétt að ræsa sig. Kormákur Hvöt situr um miðja deild eftir þetta ræs og eflaust margir sem vilja láta stoppa talninguna á þeim tímapunkti. Okkur var spáð langneðstum fyrir mót af misvitrum og oft sjálfskipuðum sérfræðingum sem myndu ekki geta borið kennsl á nokkurn mann í okkar liði. Áfram svona og við verðum í góðum gír þegar kemur að réttum og sláturtíð.

En kunnugleg teikn eru á lofti hjá okkar liði. Héraðsíþróttin “spjaldasöfnun” fer full fjörlega af stað, þannig að í næsta leik verðum við með þrjá lykilmenn í banni. Sem er allt of mikið.

Húnvetningar eru grjótharðir á velli, það er gömul saga, ný og til framtíðar. Sem er vel, þó svo að í upphafi skyldi alltaf endinn skoða. Spjald er nefnilega ekki það sama og spjald. Spjöld sem hægt er að forðast eru þau verstu að fá. Sérstaklega þegar þau eru rauð

Rýnum í gögnin og höfum þau úr deildinni okkar, einni neðar og einni ofar. Þar leika 36 lið fótbolta og hafa þau öll fengið spjöld eins og gera má ráð fyrir. Fæst liðanna hafa fengið rauð spjöld; aðeins fjögur lið hafa látið víkja manni af velli. Hin 32 hafa hangið fullskipuð allar 180 leikmínúturnar sem eru að baki.

Gul spjöld hafa fengið að blakta, þar sem liðin hafa fengið 5 slík að meðaltali. Mest í Breiðholts-Leikni (9 stykki), en prúðmennin í KFG og Haukum fæst (2).

Fróðlegasta tölfræði agamála er kannski refsistigin. Í denn var talað um 1 stig fyrir gult og 2 fyrir rautt. Ef sú tölfræði er skoðuð má sjá að eftir tvær umferðir skera tvö lið sig úr. Fyrrnefndir Leiknismenn og svo við. Leiknir er með 11 refsistig og við 10. Næsta lið með 8, sem er marktækur munur eftir ekki fleiri leiki.

Kormákur Hvöt hefur safnað 6 gulum spjöldum og tveimur rauðum. Af þessum gulu komu tvö á sama manninn í sama leiknum, sem endar jú með brottvikningu. Við höfum því misst menn af velli þrisvar í tveimur leikjum og erum einum varnarmanni, einum miðjumanni og einum sóknarmanni fátækari í næsta leik.

Ástæður þessara brottvísana eru jafn ólíkar og þær eru margar. Í dag má sjá allt á videóspólu eftir leik og því leikur einn að greina.

Einum okkar manna var vikið af velli fyrir að slá til mótherja. Fyrir það fékk hann svo aukaleik í bann.

Næsti var dæmdur sekur um að hafa stöðvað framherja ólöglega í að komast í upplagt marktækifæri. Var aftasti maður og fær því rautt. Slíkt gerist.

Þriðja rauða var svo fyrir að því er virðist tuð manns á gulu spjaldi. Sem á ekki að gerast, sérstaklega á síðustu leikmínútu venjulegs leiktíma. Áherslum dómara fyrir leiktíðina var breytt og þær auglýstar. Nú má eiginlega ekki tala við dómara nema ef þú ert með fyrirliðabandið, svo við erum að færast meira yfir í það sem þekkist í körfubolta þar sem þeir í svörtu búningunum eru alheilagar kýr. Þetta eru reglurnar i dag.

Tvö af þessum rauðu spjöldum hefði mátt forðast svo auðveldlega. Orðið á götunni er að það sé auðveldara að æsa okkar lið upp en að stela nammi af barni og það er það sem lið munu leita í. Klípa, hvæsa og tjakka upp. Sem leikreyndir leikmenn eiga ekki að láta teyma sig í.

Næsti leikur liðisins er gegn Ægi í Þottlákshöfn, sem Aðdáendasíðan er búin að eyrnamerkja sem eitt þeirra liða sem við eigum að geta skotið fyrir aftan okkur í lokastigatöflunni. Til að það verði að veruleika þarf margt að ganga upp. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og aðdáendur eru búnir að leggja of mikið á sig til að endurtekin stundarbrjálæði séu að höggva skörð í okkar góða lið.

Skilaboðin eru: hættum að fá gul og rauð spjöld, en höldum áfram að spila fast. Hættum að tuða og fá refsingar fyrir hluti sem koma fótbolta ekkert við. Byrjum á því næsta laugardag gegn Ægi.

Góðar stundir.

Leave a Reply