
Þá er alveg að koma að því að tímabilið byrji og því settust fréttaritarar Aðdáendasíðunnar niður og skoðuðu málin. Skemmtilegast er að skoða dálkinn komnir/farnir, en líka leikjadagskrána og hvað er búið að vera að gera og græja núna í vor.
Eins og undanfarin ár er akkúrat ekkert að marka byrjun undirbúningstímabilsins, þar sem á þeim árstíma erum við ekki komnir með í lið. Stundum höfum við verið svo langt frá því að vera með lið að við höfum ekki tekið þátt í Lengjubikar. Það gerðum við þó í ár með allskonar niðurstöðum. Í byrjun febrúar töpuðum við of stórt fyrir KFG, sem að okkar mati er lið sem er verra en okkar þegar grasið tekur að grænka. Þeir mega eiga þessa pre-season sigra. Þróttur Vogum er gott lið sem tók okkur sannfærandi í Akranes”höllinni”, í leik þar sem markstangirnar fengu svo sannarlega að finna fyrir því. KV batt á okkur hnút í leik sem við setjum á öskuhauga sögunnar áður en Hvíti Riddarinn sigraði okkar lið 1-0 í Mosó. Í þeim leik voru komnir flestir þeir leikmenn sem munu spila í sumar, ef undanskilið er kreatívi armur miðjunnar. Það var því spennandi að sjá loksins alla okkar hesta í síðasta leik Lengjubikarsins, þar sem við yfirspiluðum okkar fornu fjendur Reyni Sandgerði.
Að auki veit Aðdáendasíðan til þess að í æfingaleik gegn Dalvík/Reyni fór 4-4 og svo mauluðum við á KF frá Fjallabyggð nýlega 7-0. Sumsé stígandi í undirbúningi fyrir leiktíð
Stóri munurinn frá í fyrra felst í samsetningu leikmannahópsins og uppleggi nýs þjálfara. Við erum að spila allt öðruvísi en áður, sem hefur haft sína vaxtaverki. Sem er hið fínasta mál ef það skilar okkur smurðara flæði þegar hlutirnir fara að skipta máli.
Leiktímabilið byrjar bratt. Næstu helgi eigum við leik gegn KFA í Fjarðabyggðarhöllinni. Þetta er vel samsett lið sem ætlar sér örugglega upp eftir vonbrigðatímabil í fyrra. Í fyrra sóttum við núll og nix í þeirra greipar svo nú er lag að balansera þann bankareikning. Grótta er gríðarsterkt lið sem kemur í heimsókn á Blönduósvöll rétt fyrir miðjan maí. Ef fréttaritarar Aðdáendasíðunnar væru veðmálamenn, þá færi peningurinn á að völlurinn verði ekki klár, svo annarstaðar verður að spila. Nýtum við tækifærið á að minna á hversu gott það væri að eiga góðan malarvöll í Húnaþingi, sem væri tilbúinn löngu fyrir grastíð. Enn og aftur bendum við á að staðsetningin fyrir hann væri kjörin á Dæliseyrum í Víðidal eða úti á Skaga. Þriðja umferð sér Kormák Hvöt heimsækja vini vora í Ægi, en sérstök tilhlökkun er í Aðdáendasíðunni fyrir að heimsækja það góða fólk. Fjórða umferð sér heimsókn frá Káramönnum af Akranesi. Gott væri að hafa völlinn kláran í það, enda hafa báðir okkar sigrar í viðureignum liðanna komið nyrðra. Maímánuði er svo slúttað með heimsókn í Ólafsvík þar sem leikið er gegn Víkingi Ó.
Það má segja að fjögur af þessum fimm liðum séu hópar sem ættu að berjast um að komast upp. Eitt þeirra lék í Lengjudeildinni í fyrra, eitt var að slá út lið sem spilaði í Bestu deildinni í fyrra og tvö eru stabíl lið í deildinni. En er það ekki akkúrat það sem við viljum? Að fá að vera lítilmangarinn og brenna svo lið þar sem þeim mest svíður? Svarið á “jú”.
Að liðinu. Í fyrra skoruðum við lang fæst mörk í 2. deildinni, en það sem kom okkur til bjargar var gríðarlega öflug vörn. Þessir tveir punktar hafa verið teknir og byggt á þeim. Vörnin er í grunninn sú sama, en búið er að breyta til í sóknarleiknum. Kíkjum á liðið eins og það hefur verið á undirbúningstímabilinu, frá aftasta manni og fram á við.
MARK:
Á milli stanganna mun í sumar standa hinn gríðarlega hávaxni Svíi Simon Zupancic. Af honum er gríðarlega vel látið erlendis frá og miðað við raddir norðursins þá er hann að koma mjög vel inn í hópinn. Í fyrra byrjaði hinn frábæri markmaður Uros Duric tímablið og stóð sig frábærlega. Hann þurfti heim að snúa á miðju tímabili og við honum tók hinn talsvert verri Alejandro Boa, sem reyndust vera ein verstu panikkaup í sögu félagsins. Hann, með fullri virðingu fyrir öllum, átti engan vegin heima í þriðju efstu deild á Íslandi.
VÖRN:
Ef horft er á mönnun varnarinnar þá er hún betri en í fyrra, sem þó var góð. Fyrirliðinn Acai

hefur verið að spila í nýju hlutverki í vetur, þar sem hann hefur verið að manna hægra megin í einskonar þriggja hafsenta línu. Hægri bakvörður, en samt ekki.
Í hjarta varnarinnar er leikmaður ársins 2024, Sergio Uolú, sem er gríðarlega gott að fá aftur. Oft er talað um að menn gefi allt í leikinn, en svo er hægt að gefa ALLT eins og portúgalska tröllið gerir í hverjum leik. Jafn ósérhlífinn leikmann munum við bara ekki eftir að hafa séð nyrðra.
Honum við hlið er svo kominn aftur Domi frá Tindastóli. Honum muna allir sannir aðdáendur eftir, enda einn fyrsti erlendi leikmaðurinn sem Kormákur Hvöt flutti inn fyrir nokkrum árum. Þegar hann er kominn í leikform er um sannan liðsstyrk að ræða. Hann hefur hæð og mikla sendingagetu og passar vonandi vel saman með Sergio í hjarta varnarinnar
Vinstra megin hefur svo Papa verið að spila, en hann mætti óvænt aftur á Blönduós, búinn að græja sér vinnu og húsnæði og langar mikið að vera áfram með. Gull af manni þar á ferð, enda kosinn besti liðsfélaginn síðast þegar um það var kosið á lokahófi.
Mateo Climent, okkar trausti vinstri bakvörður undanfarin ár er fluttur á Flúðir og mun leika með Uppsveitum í sumar. Óskum honum velfarnaðar á nýju sviði. Anton Ingi Tryggvason hefur ekki sést á undirbúningstímabilinu og vitum við ekki hvað sá góði liðsmaður ætlar sér með sumarið.
MIÐJA:
Einn albesti leikmaður undirbúningstímabilsins hefur verið Sigurður Pétur Stefánsson. Þindarlaus og granítharður. Eins og hann gæti alveg eins spilað aðrar 90 mínútur þegar leikirnir klárast. Ef hann heldur áfram inn í sumarið eins og það síðasta kláraðist og veturinn hefur spilast, þá veðjum við ekki á móti því að hann lyfti “Leikmaður ársins” titlinum í haust.
Með honum aftarlega á miðjunni hefur verið að spila nýr maður, Helistano Manga. Sá kemur með gyllta ferilskrá frá ýmsum löndum og ætti að vera svindkall í deildinni, miðað við hvar hann hefur spilað. Hann hefur verið rólegur í undirbúningstímabilinu en nú tekur alvaran við og við köllum eftir stórleikjum frá honum.
Þriðji maðurinn á miðjunni hefur litið mjög vel út undanfarið, en þar er á ferðinni hinn brasilíski Matheus Gotler. Hann virðist geta teiknað boltann á hvaða tíkall sem hann langar, smyr boltann áreynslulaust upp í vinkla og er þessi hlekkur sem okkur hefur svo mikið vantað á miðjuna – þetta skapandi afl sem sendir lokasendinguna og býr til færi.
Siggi Aadnegard virðist vera búinn að jafna sig á þrálátum meiðslum sem héldu honum frá stórum hluta síðasta árs, en ef við fáum hann í gang í sumar þá er það búbót sem þarf ekki að lýsa í mörgum orðum. Barátta, hlaupageta og gríðarleg vinnsla er eitthvað sem þetta lið þarf nauðsynlega.
Farnir af miðjunni frá í fyrra er Emi Nikpalj, sem kom með stóra highlights klippu en sýndi lítið í erfiðu árferði. Einnig virðist Viktor Ingi Jónsson hafa lagt skóna á hilluna allt, allt of snemma, en við lifum í voninni að hann sjái ljósið þegar grasið tekur að grænka.

SÓKN:
Okkar leikmenn skoruðu 17 mörk í deild í fyrra. Af þeim sem eru farnir komu 10 mörk, svo það er ljóst að liðið sem heild þarf að stíga upp og finna mörk. Mikið var um meiðsli og hnask í fyrra og vonum við að sú óáran sé að baki.
Áfram verða með í sumar þeir Ismael Sidibe og Goran Potkozarac. Báðir frábærir leikmenn sem við þurfum nauðsynlega á öllum sílindrum að halda. Ismael er alger vél í framlínunni, nautsterkur og kemur sér endalaust í færi. Ógleymanlegur er síðasti leikurinn í uppferðartímabilinu 2023 þegar dómarinn ætlaði sér ekki að gefa honum neitt, leyfði varnarmönnum að teika hann eins og vörubíl í hálku, en samt komst hann í gegnum allt mótlætið og átti stórleik. Þennan Ismael þurfum við í sumar.
Goran er nýlentur á Íslandi eftir að hafa tekið fullt tímabil í heimalandi sínu Serbíu. Það er nákvæmlega það sem hann þurfti á að halda, að spila ekki í 10 stiga frosti og koma sér í fullt gas fyrir átök sumarsins. Goran náði aðeins 16 leikjum á síðasta tímabili, en maður lifandi hvað hann er góður þegar hann er í stuði.
Viðbót í sóknarvalsinn er svo gríðarlega spennandi örvfættur kantmaður að nafni Khalok. Hann er með hraða og markanef sem hefur skilað haug af mörkum í upphitunarleikjunum. Haldist þessi heill er hann alveg ný vídd í sóknarleikinn, svipað og Akil de Freitas hér um árið. Nokkrum sinnum hefur liðið reynt að fá Khalok til lags við sig, en nú tókst það. Let the show begin!
Mjög ánægjulegt var að sjá að Kristinn Bjarni Andrason fékk full félagaskipti úr Þór til okkar í vetur, svo hann verður lánsmaður í ár eins og undanfarin, heldur fullur meðlimur liðsins. Hann átti frábært undirbúningstímabil í fyrra, en meiddist í fyrsta leik og var því ekki 100% í fyrra. Gæti átt breakout tímabil í ár.
Jón Gísli Stefánsson hefur verið meiddur á undirbúningstímabilinu, svo hann “eigum við inni” í sumar. Hann er lunkinn og kemst oft framhjá varnarmönnum í mjög þröngum stöðum – hann þurfum við heilan og sprækan.
Farnir eru hinn geðþekki Artur Balicki, sem var okkar markahæsti leikmaður í fyrra með fimm mörk. Hann er góður í fótbolta, en passaði einhvern veginn ekki inn í leikstílinn og reynir fyrir sér með KFK í Kópavogi deild neðar í sumar. Atli Þór Sindrason hefur verið að fá margar mínútur með Lengjudeildarliði Þórs í vetur, svo við gerum síður von á því að hann mæti í sumar. Lifum þó í voninni, því hjá okkur gæti Atli verið í algeru aðalhlutverki. Óljóst er með þátttöku Ingva Rafns Ingvasonar í sumar, þar sem hann er nú búsettur í borginni, en við þurfum ekki að halda langa tölu um hans mikilvægi fyrir liðið – enda bæði markahætur og leikjahæstur í sögu þess.
UNGMENNI:
Í fyrra vorum við með fimm lánsmenn á 2. flokks aldri frá Þór. Tveir af þeim koma úr okkar eigin unglingastarfi, en hinir þrír hreinir Þórsarar. Vandamálið við það setup var að þrír af fimm komu aldrei í Húnaþing nema til að leysa af í leikjum og að fyrir alla fimm var 2. flokkur Þórs forgangsatriði.
Þeir misstu því að leikjum okkar liðs ef 2. flokkur var að spila á sama tíma, sem er ekkert vit. Ekki er því framhald á þessu setupi að sjá, sem gerir hópinn vissulega minni en ella, en styttir um leið stíginn fyrir okkar ungu leikmann. Þó að lærdómsbrekkan sé mjög brött og levelið í 2. deild sé hátt, þá er um að gera að henda þessum gaurum inn á völlinn. Þar erum við með varnarmanninn Stefán Frey Jónsson, varnar/miðjumanninn Egil Þór Guðnason, miðjumanninn Sigurjón Bjarna Guðmundsson, miðjumanninn Anton Einar Mikaelsson og sóknarmanninn Hauk Inga Ólafsson. Aðdáendasíðan hefur séð þá alla koma inn á völlinn og gera góða hluti – en auk þeirra eru nokkrir ungir leikmenn sem bíða á hliðarlínunni og gætu séð gras í sumar.
ÞJÁLFARINN:
Nýr maður er í brúnni hjá Kormáki Hvöt í sumar. Dominic L. Furness kemur frá Jórvíkurskíri upphaflega, en lék hér á landi með nokkrum liðum, meðal annars í efstu deild. Aðdáendasíðan er á því að hann sé akkúrat það sem liðið þurfti nú til að taka það á næsta stig. Hann er afar viðkunnaleg persóna, hefur innstillt nýtt agastig í liðið og komið með skemmtilegar nýungar í leikstíl. Með liðið á bak við sig og okkar sterka kjarna aðdáenda er Hr. Furness og Kormákur Hvöt reiðubúin í að gefa spákerlingum langt nef og ná okkar besta árangri í sögunni!
