Í þriðja heimi

Íslandsmótið 2025 fer fínt af stað. Kormákur Hvöt er að koma sér hægt og rólega í liðsform og menn farnir að læra á hvorn annan. Rétt rúmur mánuður síðan liðið var allt mætt í Húnaþing og því má segja að pre-season sé búið. Leikmenn sem höfðu engan fótbolta spilað í allan vetur eru að hrista af sér vetrarhaminn og fara vaxandi.

Þriðjungur er núna liðinn af mótinu, átta leikir af 22, og því rétt að skoða á spilin. Sem fyrr var okkar liði spáð lang neðst af spekingum fyrir mót. Við skiljum það að vissu leiti, þar sem við erum alltaf shaky í Lengjubikarnum og erum oftast ekki komnir með lið þegar spámál eiga sér stað. Þó mætti segja að þeir sem spá ættu að vera farnir að vita að okkar lið er alltaf frekar að leita sér að smá leikformi í Lengjubikar og sjaldan fullmótað fyrr en á lokamínútum félagaskiptagluggans. Þetta er ekkert nýtt.

Að okkur. Árangurinn til þessa er góður. Við höfum verið að spila við sterkari lið deildarinnar í þessum fyrsta þriðjungi og verið að ná í úrslit. Kormákur Hvöt er búið að spila á móti báðum liðunum sem féllu úr Lengjudeildinni í fyrra og verið betri en þau bæði. Að vísu unnum við bara annan og töpuðum hinum, en skilaboðin eru að við áttum að vinna báða.

Eftir 8 umferðir í fyrra sátum við í sama sæti og við gerum nú, því sjötta, með næstum sama stigafjölda og í ár. Þá 11 stig, nú 12 stig. En munurinn er styrkur andstæðinganna.

Í fyrra vorum við búnir að mæta báðum liðunum sem enduðu á að falla. Eina augnbrúnamómentið í fyrra var að við gerðum jafntefli við Hauka heima, í leik sem við áttum að vinna, en restin af leikjunum var sirka eftir bókinni.

Það er ekki nú. Við erum búnir að fara í Ólafsvík, sem á að vera einn sterkasti heimavöllur deildarinnar, og unnum þar. Unnum Gróttu á Blönduósi og bundum hnút á Káraliðið sem átti að vera spútnik ársins á sama velli. Fyrir utan það erum við búnir með okkar árlegu Bjarmalandsför á Reyðarfjörð og komum heim með fræg núll stig sem kippti okkur niður á jörðina, búnir að fara í heimsókn til Hauka á völlinn sem skilar okkur nánast alltaf engu og höfum lokið leik í Þorlákshöfn þetta árið gegn liðinu sem hefur ef til vill komið mest á óvart.

Til að súmmera þá erum við búnir að spila við liðin sem var spáð fjórum efstu sætunum í ár, en í fyrra höfðum við á sama tíma spilað við þrjú af þeim fjórum liðum sem var spáð í fallbaráttunni með okkur. Skyldusigrar þá, alls ekki nú.

Þessi 11 stig sem við náðum í snemmsumars reyndust obbinn af heildarstigum ársins. Í byrjun raðaðist auðveldasta prógramm ársins og við enduðum með 18 stig samtals, þar sem afar lítið gekk upp eftir þetta.

Núna erum við búnir að endurbyggja vígið sem Blönduósvöllur á að vera. Þar töpuðum við ekki leik í á þriðja ár fyrir nokkru, nú höfum við unnið alla heimaleiki nema þennan á móti Dalvík. Liðið hefur þegar sigrað í fleiri heimaleikjum nú en það gerði allt árið í fyrra, þrjú höfuðleður á veggjum nú en aðeins tvö allt árið í fyrra.

Hvað er að valda?

Í fyrsta leik fengum við löðrung með báðum lófum í einu. Vorum burstaðir, fláðir, flengdir. Það getur gerst, en það sem skiptir máli er hvernig er brugðist við á hinni löngu reið heim frá Reyðarfirði.

Góð lið fá á kjaftinn. Hver man til dæmis ekki eftir því þegar Englandsmeistarar Liverpool töpuðu 7-2 gegn Aston Villa í október 2021? Færri muna kannski eftir því þegar Valur vann Víking 13-1, en punkturinn stendur.

Eftir þennan leik hefur vörnin verið frábær. Ekkert lið hefur oftar haldið hreinu en Kormákur Hvöt, bara tvö lið fengið á sig færri mörk, eða sex stykki í leikjunum sjö eftir magalendinguna í maí.

Sóknarleikur liðsins er skilvirkur. Í þessum sjö leikjum eru komin átta mörk, en fjórir sigrar. Við látum mörkin okkar telja og læsum svo út leikinn. Höfum unnið alla leiki þar sem við skorum á undan.

Okkar helsti markaskorari, Ismael Sidibe er bara búinn að spila 68 mínútur á leiktíðinni, aðallega vegna meiðsla, svo aðrir hafa stigið upp. Goran þegar kominn með þrjú mörk og stefnir hraðbyri á að tvöfalda fjöldann yfir ferilinn með Kormáki Hvöt. Hann er búinn að skora þriðjung allra marka liðsins.

Talsverðar breytingar hafa orðið á okkar liði frá því sem kláraði síðasta tímabil. Ef þrír síðustu leikir ársins 2024 eru skoðaðir við hlið síðustu þriggja leikja í ár, sést að þeir leikmenn sem hafa byrjað leiki eru færri. Alls hafa 15 leikmenn byrjað leiki nú, en voru 18 í samanburðarleikjunum. Þetta er gott og sýnir stabilítet. Byrjunarlið eiga ekki að róterast of mikið á milli leikja nema ef nauðsynlegt er.

Eins og venjulega eru nokkrar breytingar á hópnum á milli ára. Menn flytja, fara annað og hætta í fótbolta. Bestu erlendu leikmennirnir snéru aftur og aðrir fengnir í stað þeirra sem mátti uppfæra.

Markmaðurinn er nýr, tveir af fjórum í byrjunarvörn eru nýir og af þeim þrír fyrir framan hana ný andlit. Allt er þetta að slípast á góðum hraða. Þjálfarinn Dom er svo að mati Aðdáendasíðunnar himnasending inn í hópinn, toppmaður sem heldur uppi góðum aga í liði sem eflist með hverri raun.

Gárungar sjá sambærileg einkenni á okkar liði og Bestudeildarliði Vestra. Enga hlakkar til að fara lengst út á land að spila við okkur, liðið tekur talsverðum breytingum á milli ára, kemur seint saman og er með fantaflinka einstaklinga í sínum röðum. Ekki mikið skorað og ekki mikið fengið á sig.

Núna byrjar fjörið. Við erum búnir með topplið, þó að í næsta leik bíði besta lið deildarinnar – Þróttur Vogum. Í fyrra unnum við þá með flautumarki, 0-1, og ekki er loku fyrir það skotið að fjöldi marka verði svipaður næstu helgi. Bæði lið kunna að verjast. Vonum bara að fyrsta markið verði okkar og þá er þetta komið.

Bjart er yfir Betlehem. Kormákur Hvöt er með hörku hörku lið árið 2025. 

Leave a Reply