Nú styttist aldeilis í mót, grös farin að grænka og allt það. Þá er rétt að fara að tryggja sér árskort Kormáks Hvatar 2023. Til að berjast gegn verðbólgunni er miðaverð lægra en í fyrra, sem er allt að 40% lægra en sambærilegt kort annarra liða í deildinni!
Verðið er hlægilegt, aðeins krónur 9.000, en gegn því fæst:
– Aðgengi að öllum heimaleikjum í sumar
– Afsláttur af réttum hjá Teni á Blönduósi og Sjávarborg á Hvammstanga
– Frítt í sund á Blönduósi og Hvammstanga á heimaleikdögum
– Hressing í hálfleik heimaleikja
– Límmiði í bílinn
– Almenn gleði!
Hægt er að versla miðann í Stubbs-appinu, en ef mannskapurinn er ekki með það, þá er bara að hafa samband við khknattspyrna@gmail.com.
Reviews
There are no reviews yet.